21. desember 2006.
Á myndinni hérna til hægri sést yfir nýja salinn eins og hann er nú í desember, hann er næstum alveg fullur. Ragnar Geirdal kom og vann í Fordinum, hann stillti hvalbaknum, brettunum og húddinu upp og þetta passar bara býsna vel saman. Björgvin Jakobsson kom og setti húsið á Studebakerinn sinn, nýsprautað og fínt. Starfsfólk safnsins vilja nota tækifærið og bjóða landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á næsta ári.
|
 |
 |
Nýji salurinn í desember 2006 . |
2. október 2006.
Ég hef ekki getað uppfært síðuna í nærri 2 mánuði vegna þess að tölvan bílaði en núna á hún að vera komin í lag. Þann 7. september kom Eiríkur Gunnarsson og færði safninu tvo trukka til varðveislu. Þessa bíla átti GG flutningar, annar er Autocar árg. 1946 og hinn er International árg. 1965. Autocarinn er í góðu standi, en Nallinn er orðinn talsvert ryðgaður. Þeir eru báðir ökuhæfir. Smellið á myndina til að sjá fleiri myndir af trukkunum. |
 |
 |
Autocar 1946. |
|
2. ágúst 2006.
Í dag kom Þorgeir Reynisson í heimsókn
til okkar, Þorgeir býr í Noregi en koma hans til
landsins hefur vægast sagt vakið mikla athygli í
íslenska bílaheiminum. Hann ekur nefnilega um á
eldrauðum Mustang 1966 blæjubíl, og ekki nóg
með það, bíllinn er Shelby eftirlíking
á 17" felgum og er alveg meiriháttar fallegur.
Þorgeir sagði að hann hefði ekki fengið frið
fyrir æstum aðdáendum allan tímann sem hann
hefur verið á landinu, en hann fer með Norrænu
til Noregs á morgun.
|
 |
 |
Mustang 1966 í heimsókn.
|