| AM General árg. 1971
Grímur Jónsson keypti þennan bíl hjá Sölunefnd varnarliðseigna 1985. Arnar Ingólfsson keypti hann svo af Grím 1996. Arnar lánaði safninu bílinn 2002. Þessir jeppar eru með gorma og sjálfstæða fjöðrun á hverju hjóli, þeir eru ekki með hátt og lágt drif heldur bara fjóra gíra áfram. Vélin er fjögurra sílindra Continental toppventla vél, hún er alveg vatnsþétt, þ.e. bæði kveikja og blöndungur. |
 |
|
AMC Jeep CJ5 1972
Einn af fyrstu AMC jeppunum sem komu til landsins. Þann 24. maí 1972 keypti Ólafur Sigurðsson á Búvöllum í Aðaldal þennan bíl nýjan og hefur átt hann síðan. Í þessum bíl er 6 sílindra 258 kúbik tommu línuvél. Warn rafmagnsspil var sett á bílinn 1974. Ólafur notaði bílinn við ýmis störf m.a. heyskap á búi föður síns. Bíllinn var upphaflega með svörtum Witchko blæjum, en árið 1982 keypti Ólafur Meyer hús sem var af jeppa sem kom í gegnum Sölunefnd varnarliðseigna. Aldrei hefur verið skipt um hjöruliði í drifsköptum, né stýrisenda í bílnum, kúplingin er sú upphaflega, en búið er að skipta um fjaðrir. Bíllinn er keyrður u.þ.b. 235.000 km. |
 |
|
Bens Unimog 1955
Ingólfur keypti Unimoginn rétt fyrir 1970 af Ræsi hf. Hann var notaður við margvísleg landbúnaðarstörf framundir 1990. Þessi bíll er mjög duglegur í ófærum, dregur alveg ótrúlega mikið. Vélin er 4ra sílindra dísil 30 hestöfl, 6 gírar áfram og tveir gírar afturábak, og drifunum er læst handvirkt, niðurgírun er útí hjólum. |
 |
|
Bombardier snjóbíll árg. 1951
Þennan snjóbíl keypti Ingólfur af Friðriki Glúmssyni Vallakoti í Reykjadal en Friðrik fékk hann hjá Stefáni Hannessyni á Stórutjörnum. Stefán fékk hann hjá Páli Sigurðssyni í Varmahlíð og Páll keypti snjóbílinn af Guðmundi Jónassyni. Ingólfur notaði hann til aksturs á skólabörnum í þó nokkur ár, að vísu var stundum sagt að þegar snjóbíllinn væri kominn út þá kæmi enginn snjór. Guðmundur Jónasson fjallabílstjóri keypti þennan bíl nýjan og fór með hann beint austur á land til að hjálpa bændum við fóðurflutninga snjóaveturinn mikla 1951. Um vorið þegar hann fór aftur suður kom hann við hjá Geysis flakinu á Bárðarbungu og tók eitthvað af varningi með sér. |
 |
|
Brengun carrier 1944
Uppúr 1960 voru fluttir inn 3 eða 4 svona skriðdrekar og átti að nota þá sem snjóbíla. En bæði eru beltin of mjó og brynvörnin alltof þung til að hann kæmist nokkuð í snjó. Þessi skriðdreki lenti upp í Borgarfjörð þar sem Leopold í Hreðavatnsskála notaði hann við girðingarvinnu í hrauninu og eitthvað fleira, síðan fór hann norður í Sleitustaði, þar sem Ingólfur keypti hann í kringum 1980. Þá var búið að smíða á hann stýrishús og breyta ýmsu smálegu, en síðan hefur verið unnið við að koma honum í upprunalegt horf. Þessi tiltekni skriðdreki var framleiddur í Kanada í desember 1944 en þeir voru framleiddir í nokkrum löndum m.a. USA og Bretlandi í verksmiðjum Ford, gangverkið er V8 Ford flathedd, 4ra gíra kassi og hásing er allt það sama og í Ford vörubílunum á þessum árum. |
 |
|
Dodge Carry All ½ ton 1940
Þessir bílar eru með 6 sílindra flathedd vél, 4ra gíra kassa og einföldum millikassa þ.e. ekki lágt drif. Þennan bíl keypti Ingólfur af Norska herliðinu í Reykjavík í september 1945. Nokkrir Norskir hermenn höfðu þá tekið hann í leyfisleysi og farið út að skemmta sér og fengið heldur mikið af óþekktum vökva og ökuferðin endaði út í skurði, þar lenti bíllinn á stórum steini og einnig símastaur. Ástand bílsins var þá þannig að framhásingin var laus og lá langsum undir bílnum, annað grindarhornið að framan mikið bogið og efri endinn á staurnum sem hékk í vírunum hafði lamið bílinn að aftan. Þarna keypti Ingólfur bílinn og flutti hann á verkstæði Sveins Egilssonar við Hlemm, en Ingólfur vann þar þá, þegar bíllinn hafði staðið nokkra daga á planinu hjá verkstæðinu fóru að hverfa úr honum ýmsir lauslegir hlutir m.a. báðar hurðirnar og dekkin, kom þá í ljós að þarna voru að verki íslendingar að redda sér varahlutum af því þeir héldu að herinn ætti bílinn en þegar þeir fréttu að Ingólfur væri eigandinn þá fóru hlutirnir að skila sér aftur, það kom allt nema önnur hurðin og það gekk meira að segja eitthvað af. Ingólfur byrjaði strax að gera við hann og var fljótlega farinn að aka honum, í fyrstu á 20" felgum og dekkjum af gamla Ford. Þegar þau Ingólfur og Kristbjörg fluttu norður um vorið ´46 fylgdi gamli Dodds auðvitað með, hann var þá eini fjórhjóladrifni fólksflutninga bíllinn í sveitinni og lenti þess vegna í mörgum slarkferðum í misjöfnu veðri og færð. Hann var í fullri notkun fram undir 1970 en síðan hefur hann átt náðugri daga og hann er nú í því ástandi sem hann var í þegar hætt var að nota hann, en hann var málaður og snyrtur að innan í kringum 1993. Þess má geta að reikningarnir og tollskýrslan er til frá því að Ingólfur keypti bílinn. |
 |
|
Dodge Coronet 440 1967
Þessi bíll er með 6 sílindra 225 kúbika, 145 hestafla vél og 3ja gíra kassa. Þessum bíl hefur aðeins verið ekið 121.908 kílómetra. Már Hallgrímsson bankastjóri á Fáskrúðsfirði keypti þennan bíl nýjan og átti hann til 1978. Þá kaupir Tryggvi Sigmundsson á Gestsstöðum við Fáskrúðsfjörð bílinn og átti til ársins 1994, þá eignast Smári Júlíusson hann og seldi Sverri Meyvantssyni í Reykjavík sama ár. Sverrir seldi Ingólfi og Kristbjörgu í Ystafelli bílinn 1995. Þetta var heimilisbíll þeirra þar til þau létust á fyrri hluta ársins 2003. |
 |
|
Dodge Weapon Carrier 3/4 ton 1942
Ingólfur fékk þennan bíl 1991 hjá Ólafi Theódórssyni á Tjarnargerði í Eyjafirði en faðir hans notaði bílinn lengi sem snattbíl í kringum skurðgröfu útgerð sem hann átti, Theódór hafði fengið hann hjá Tryggva Jónatanssyni á Litla Hamri í Eyjafirði. Þessi bíll var lengi með skrásetningar númerið A392. Húsið er íslenskt en þessir bílar komu orginal með blæjum, ekki er ólíklegt að hermennirnir hafi smíðað þetta hús í upphafi. |
 |
|
Farmall Cub 1959
Vantar texta |
 |
|
Fiat 1100 1956.
Þór Magnússon, fyrrverandi þjóðminjavörður gaf safninu þennan bíl 2002. Bíllinn hafði þá verið í eigu fjöldskyldu meðlima Þórs frá upphafi.
Fiat 1100 er með fjögurra sílindra vél, 36 hestöfl. Framhurðirnar opnast öfugt á þessum bíl.
|
 |
|
Ford 1938 vörubíll
Þessi bíll er í uppgerð og er í rauninni verið að setja saman tvo bíla. Bíll nr. 1 er bíll sem Árni Hansen á Sauðárkróki keypti nýjan og var með númerið SK-52, seinna eignaðist skólabúið að Hólum í Hjaltadal bílinn og er þaðan komið nafnið "Hólafordinn" þá fékk hann númerið K-33. Þriðji eigandi var Ingólfur Andrésson bifvélavirki, hann gerði bílinn upp, seinna eignaðist Trausti Símonarson Litluhlíð í Skagafirði bílinn. Ingólfur Kristjánsson fékk svo þennan bíl 1999, þá var lítið orðið eftir af honum, en grindin og ýmsir smáhlutir voru samt notaðir.
Bíl nr. 2 fékk Ingólfur kaupfélagsstjóri á Hellu nýjan og notaði til flutninga fyrir kaupfélagið. Síðan eignuðust Eiríkur og Rafn í Réttarholti bílinn og notuðu í nokkur ár, Eiríkur seldi síðan Víkingi Guðmundssyni bílinn árið 1945, Víkingur notaði bílinn meðal annars til malarflutninga þegar verið var að byggja spítalann á Akureyri. Aðalsteinn Þorsteinsson bílstjóri á Stefni, keypti svo bílinn 1947 og átti til ársins 1955. Þá keypti Gústav Behrend á Sjávarbakka bílinn og átti til 1963. Sigurgeir Geirfinnsson bóndi á Auðnum í Öxnadal eignaðist þá bílinn og notaði í mörg ár við búið. Starri Hjartarson fékk svo bílinn í kringum 1990 og kom með hann í Ystafell, Starri afhenti svo Ingólfi gripinn til eignar 1997. Árið 1938 kom Ford með 85 hestafla V8 vél (21 heddbolti) og fjögurra gíra kassa, þetta var síðasta árið sem Ford notaði teinabremsur, reyndar eru barkar út í hjólin á þessari árgerð. |
 |
|
Ford F-600 1955. Þ 389
Ingólfur Hallsson Steinkirkju í Fnjóskadal keypti þennan bíl nýjan og hefur átt hann síðan. Þegar hann kom nýr var hann með einföldu húsi og palllaus, en svo var hann lengdur á Fossi á Húsavík. Þaðan fór bíllinn á Fjalar þar sem Ingólfur Helgason smíðaði tvöfalt hús á hann, og settur var á hann fastur pallur fyrir mjólkurbrúsa. Árið 1959 setti Ingólfur Kristjánsson annan pall og sturtur á þennan bíl. Þessi bíll er með átta sílindra bensín vél, 256 kúbik tommu. |
 |
|
Ford herjeppi 1942
Ingólfur keypti þennan jeppa á Akureyri 1989 og þá var búið að breyta honum talsvert frá sinni upprunalegu mynd m.a. setja svuntu framan við grillið og lengja brettin fram að stuðaranum, setja Grettis körfu á hann og íslenskt gluggastykki, en gangverkið var óbreytt, síðan hefur verið reynt að koma honum í upprunalegt horf. |
 |
|
Ford AA 1929
Árið 1929 kom Fordinn með 40 hestafla 4ra sílindra vél og einn 4ra gíra kassa, en árið áður voru þeir með 3ja gíra kassa og auka kassa aftan við hann. Vörubílarnir á þessum árum voru yfirleitt keyptir opnir inn til landsins og síðan var byggt yfir þá hér á landi, það var jafnvel gengið svo langt í gjaldeyrissparnaðnum að stigbretti og varahjól voru ekki keypt með bílunum. Á þessum bíl er allt sem er grænt íslenskt en það svarta kom að utan. Þennan bíl fékk Ingólfur í kringum 1956 hjá Jóhannesi Hermundarsyni líkkistusmið á Akureyri en Jóhannes hafði fengið bílinn sunnan úr Kópavogi. Seinna ætlaði Ingólfur að gera heyvagn úr bílnum en Ari sonur hans sem þá var nokkura ára var eindregið á móti því og þess vegna var bíllinn settur upp á loft til geymslu. Það var svo árið 1991 sem byrjað var að endurbyggja bílinn og tók það 3 ár, bíllinn er byggður sem líkastur Ford ´29 sem Ingólfur byrjaði sína bílaútgerð á.
Þann bíl keypti hann á 5000kr sem þótti mikill peningur þá en bíllinn var í góðu lagi og það fylgdi honum 3ja vikna vinna en það var góður plús þá. Ingólfur ætlaði að borga bílinn með ávísun en fyrri eigandi vildi ekki taka við henni (sagði að hann væri jafn peningalaus og áður með ávísun í höndunum) þá ætlaði Ingólfur að skipta henni í Útvegsbankanum en þar voru ekki til nógir peningar svo hann varð að snúa frá og fara í Landsbankann, en þar var hægt að skipta ávísuninni. Í þessum bíl er sturtulás og sturtuöxull úr gamla bílnum hans Ingólfs. |
 |
|
Ford Bronco 1966
Séra Sigurður Guðmundsson á Grenjaðarstað keypti þennan bíl nýjan og seldi Valdimar Valdimarssyni og Helgu Ingólfsdóttur 1974, þau áttu hann til 1982 að Ari Ingólfsson eignast hann. Bíllinn var fyrst málaður 1997, annars er hann óbreyttur frá upphafi. |

|
|
Ford Courier 1955
Hendrik Kondrup keypti þennan bíl nýjan og Páll Pálsson (Hrefnu Palli) fékk hann hjá honum. Síðan keyptu Árni Kristjánsson og Hólmfríður Jónsdóttir bílinn af Páli. Valdimar Gunnarsson eignaðist hann seinna og Ingólfur og Kristbjörg keyptu hann síðan af Valdimar. Bíllinn er 6 sílindra 3ja gíra beinskiptur og var upphaflega með lokaðar hliðar að aftan en það voru settir gluggar á hann á Akureyri.
|
 |
|
Ford Mustang coupe 1969
V8 351 kúbik tommu 2ja hólfa Cleveland, FMX sjálfskipting og 8 tommu hásing, Magnum 500 felgur og plussklæðning í anda áttunda áratugarins. Sverrir Ingólfsson keypti þennan bíl 22. febrúar 1983 og byrjaði þá fljótlega að vinna í honum, en þá var hann vélarlaus og talsvert ryðgaður, afturspoiler, útvíkkanir og breytingar á hurðum eru heimasmíðaðar. Gunnhildur Ingólfsdóttir vann við innréttinguna í bílnum. |
 |
|
Ford Taunus 20 M 1966
Þessi bíll er innfluttur notaður. Skúli Guðmundsson og Hulda Sigurvinsdóttir á Akureyri áttu þennan bíl, Hulda gaf safninu bílinn árið 2000. Taunus 20 M 1966 er með V6 vél og fjögurra gíra kassa. |
 |
|
Ford Thunderbird 1979
Þessi bíll var fluttur inn í gegnum Sölunefnd varnarliðseigna í kringum 1986. Sverrir Ingólfsson keypti hann í nóvember 1987 en þá var hann mjög upplitaður eftir sólina í Oklahoma. Vélin er 351 Cleveland og hestöflin passleg til að líða mjög þægilega áfram, hvernig sem vegurinn er. |
 |
|
Fordson E27N
Framleiddur 1946 í Bretlandi og er 27 hestöfl. Þessir traktorar voru sérstakir að því leyti að það var engin fótbremsa á þeim, aðeins handbremsa og kúplingin er öfugu megin miðað við aðra. Beltin á þessum traktor eru komin hingað sunnan úr Mosfellssveit. Það voru flutt til landsins fjögur svona beltasett af Roadless gerð í kringum 1948. Traktorinn er úr Lyngholti í Bárðardal, en þangað kom hann innan úr Eyjafirði. |
 |
|
Hankmó herfi
Í kringum 1913 var byrjað að flytja inn Finnsk hankmó herfi eins og þetta. Þetta herfi keypti Búnaðarfélag Ljósavatnshrepps í kringum 1930 og var aðallega notað utarlega í sveitinni, bændur í syðri helmingnum notuðu frekar svokallað "Lúðvíksherfi". Þetta herfi hefur aldrei verið notað aftan í annað en hesta. |
 |
|
International 10-20
Samband íslenskra samvinnufélaga byrjaði að flytja þessar vélar inn í kringum 1929. Kenningar eru um að þessi traktor hafi komið nýr til Búnaðarsambands Hólshrepps í Bolungarvík og farið þaðan á Seljalandsbúið í Ísafirði. Matthías Guðmundsson á Hvítanesi í Ögurhreppi keypti hann þar í kringum 1950 og notaði hann við landbúnaðarstörf fram til 1960. Guðjón Jónsson á Eyri í Ögurhreppi eignaðist hann síðan, en Guðjón notaði traktorinn ekki mikið og þar stóð hann þangað til Haraldur Gíslason mjólkursamlagsstjóri á Húsavík fékk hann. Þegar Haraldur féll frá fékk Ingólfur traktorinn. Þessar vélar eru merkilegar að ýmsu leyti, það er enginn startari á þeim og það er hægt að hella eter inn í soggreinina þegar sett er í gang í kulda. Sveifarásinn hvílir í 2 kúlulegum. Rúmtak vélarinnar er rúmlega 4,6 lítrar en hún skilaði bara 10 hestöflum til dráttar en 20 hestöflum á reimskífuna, þannig er nafnið 10-20 tilkomið. Þessir traktorar voru óhemju sterkbyggðir og afkastamiklir á sínum tíma. |

|
|
Kanadískur Chevrolet 1941
Í heimsstyrjöldinni síðari voru smíðaðir yfir 300.000 svona bílar af mörgum stærðum og útfærslum í verksmiðjum Ford og Chevrolet í Kanada, þeir voru ýmist með eða án framdrifs og þetta er einn af örfáum framdrifslausum svona bílum sem vitað er um hér á landi. Haraldur Böðvarsson á Akranesi flutti marga svona bíla inn til landsins eftir stríð, þá voru þeir ný yfirfarnir, margir þessara bíla urðu slökkvibílar víðsvegar um landið. Anton Jónsson á Naustum við Akureyri keypti þennan bíl af mjólkursamlagi KEA árið 1955, en mjólkursamlagið keypti bílinn af bændum í Víðigerði. Anton notaði hann til mjólkurflutninga og annara starfa allt til ársins 1983, en þá var honum lagt, haustið 2001 kom Anton með bílinn austur í Ystafell og var þá strax byrjað að endurbyggja hann. Pallurinn er nákvæm eftirlíking af pallinum sem var og öll járnin af gamla pallinum voru notuð áfram. |
 |
|
Kewet El-jet árg. 1991
Þetta er Danskur rafmagnsbíll, afl hreyfilsins er 10 hestöfl og gírarnir 4. Bíllinn er keyrður á 24ja volta spennu. Frjó ehf. flutti 2 svona bíla inn til landsins og þessi kom fljótlega norður til Akureyrar, hann var meðal annars í eigu auglýsingar stofunnar Stíls og seinna eignaðist Rafeyri hf. bílinn. Rafeyri hf. gaf safninu bílinn í júní 2001. |
 |
|
Land Rover 1951
Þennan bíl keypti Séra Þormóður Sigurðsson prestur á Vatnsenda nýjan, síðan eignuðust bræðurnir Jón og Gísli Ólafssynir á Kraunastöðum í Aðaldal hann, þaðan fékk Halldór Jónasson í Byrgisholti bílinn og Ingólfur er þar með fjórði eigandinn. Þormóður keypti bílinn með sláttuvél, einn af 4 sem kom með sláttuvél, sem var fest hægra megin aftan á og þess vegna er hann með hægri handar stýri. Númeraplöturnar á bílnum (þ 322) eru þær sem voru keyptar á hann í upphafi og fundust nýlega í kjallaranum á Vatnsenda. |
 |
|
Massey Harris Pony
Kristján Blær Ásmundsson bóndi í Lindahlíð í Aðaldal keypti þennan Pony nýjan. Síðan eignaðist Salómon Erlendsson á Húsavík traktorinn, Kristján Eysteinsson keypti hann af Salla og notaði í nokkur ár. Kristján í Lindahlíð fékk traktorinn svo aftur hjá nafna sínum og gaf svo safninu vélina haustið 2001. Hún var svo gerð upp veturinn 2003-2004. Þessi vél var aldrei með ljós en það var hægt að fá þau sem aukabúnað. Ponyinn er ellefu hestöfl og þriggja gíra.
|
 |
|
Mercury Comet S-22 1964.
Þessi bíll er með 170 cubik tommu og 105 hestafla vél, og hann er þriggja gíra stýrisskiptur. Kristján Eysteinsson og Emelía Friðriksdóttir á Húsavík keyptu þennan bíl 1972, af Áka Stefánssyni skipstjóra hjá ÚA, og hafa átt hann síðan. Karl Óskar Geirsson sprautaði bílinn 1999, en hann hefur ekki verið gerður upp að öðru leyti, en notið frábærrar meðhöndlunar eins og útlitið ber með sér. |
 |
|
Mercury Monterey 1954
Helgi Skúlason keypti þennan Mercury nýjan. Sverrir Sigurvinsson á Djúpárbakka keypti hann af Helga 24. nóvember 1964, og keyrði til ársins 1974. Þessi bíll er átta sílindra 256 kúbik tommu, 162 hestöfl og með þriggja gíra kassa. |
 |
|
Moskvitch 408 1966
Baldur Óli Jónsson tannlæknir á Neskaupstað keypti þennan bíl nýjan og átti hann lengi, þá fékk tengdasonur hans, Sigurður Runólfsson trésmiður á Akureyri bílinn og notaði hann í vinnuna. Árni Sigurðsson, barnabarn Baldurs Óla, fékk bílinn hjá pabba sínum og gerði hann upp. Moskvitch 1966 var með 4ra sílindra toppventla vél, 60 hestöfl og 4ra gíra kassa. |
 |
|
Nash Airflyte Statesman Super 1949.
Þessir bílar voru óvenjulegir og framúrstefnulegir á ýmsan hátt, bæði hvað varðar útlit og annan búnað. Það er hægt að leggja framsætisbökin aftur til að gera flatsæng, það er gardína í miðju mælaborðinu til að draga fyrir útvarpið og vegna lokuðu brettanna þarf bíllinn að vera mjórri á milli hjóla að framan heldur en að aftan svo að hægt sé að beygja. Svo má benda á að mælaborðið er einstakt í sinni röð. Þessir bílar voru með sex sílindra flathedd vél, 172.6 cubic tommu og 85 hestöfl, þriggja gíra kassa og overdrive. Helgi Elíasson viðgerðarmaður á Smára verkstæðinu í Reykjadal keypti þennan bíl í Sölunefnd Varnarliðseigna í kringum 1956 og kom með hann norður. Páll Friðriksson á Halldórsstöðum í Reykjadal keypti hann af Helga og svo keypti Hreinn Valtýrsson í Eyvík á Tjörnesi bílinn og notaði hann í nokkur ár. Valdimar Gunnarsson í Böðvarsgarði í Fnjóskadal keypti bílinn af Hreini og átti framundir 1980 en þá eignaðist Sigursteinn Þórsson á Akureyri hann. Sigursteinn afhenti safninu bílinn haustið 2000. |
 |
|
Oldsmobile Regancy 1985
Sagan segir að Íslenska sendiráðið í Washington hafi átt þennan bíl fyrstu tvö árin, en hann var fluttur til landsins 1987. Þá eignaðist Sveinn Indriðason hann, og síðan Stefán B. Ólafsson í Vestmannaeyjum. Hrafnkell Marinósson fékk bílinn 1998 og hann gaf safninu bílinn haustið 2001. Þessi bíll er með rafknúðum sætum, rúðum og öllu hugsanlegu, V-6 vél og sjálfskiptingu. |
 |
|
Plymouth Belvedere II 1966
Þessi bíll er með 6 sílindra 225 kúbika vél og 3ja gíra kassa. Þennan bíl keyptu Ingólfur og Kristbjörg 1973 af Erlendi Konráðssyni lækni á Akureyri, sem keypti hann nýjan. Hann var notaður sem heimilisbíll að Ystafelli fram undir 1988, en var þá lagður til hliðar í nokkur ár, þangað til 1998 að hann var málaður. |
 |
|
Saab 99 GL 1983
Magnús Guðmundsson rafvirki í Borgarnesi keypti þennan Saab nýjan, þegar Magnús lést eignaðist Ólöf systir hans bílinn. Þá keyptu nokkrir velunnarar safnsins bílinn af Ólöfu og gáfu hann til varðveislu. Þetta eintak er í alveg ótrúlega góðu ástandi, það er sama hvort húddið, skottið eða einhver hurðin er opnuð, hann er alls staðar eins og nýr, en hann er alveg eins og Magnús skildi við hann. |
 |
|
Skodi 110 LS árg. 1976
Ingimar Eydal tónlistarmaður á Akureyri keypti þennan bíl nýjan 1976 og notaði hann mikið allt til ársins 1981, en þá fékk Inga dóttir þeirra hjóna bílinn, en Ingimar fékk hann aftur 1984 og ók honum þangað til að hann lést árið 1993. Ingimar og kona hans, Ásta Sigurðardóttir höfðu mikið dálæti á Skoda og hafa alls átt 15 bíla af þeirri tegund, þann fyrsta árgerð 1955. Ingimar átti alla tíð númerið A 1027. |
 |
|
Trabant 601S 1986
Þennan eðalvagn keypti Bergþór Björnsson 1990 á Akureyri og notaði í nokkur ár. Sílindrarnir eru 2 og loftkældir, rúmtakið 594,5 kúbik sentimetrar og hestöflin 26. Þessir bílar eru búnir til úr gerfiharpix blöndu sem er límd á járn grind. |
 |
|
Vauxhall Viva 1970
Sverrir Guðmundsson á Lómatjörn keypti þessa Vivu nýja og notaði hana í mörg ár, þar næst fær Ólafur Sigurður Baldvinsson trillusjómaður á Grenivík bílinn og hafði sem sumarbíl til ársins 2000, að hann lét Ingólf fá bílinn. Bíllinn hefur aldrei verið gerður upp. |
 |
|
Volkswagen bjalla 1958.
Starri Hjartarson eignaðist þessa bjöllu árið 2002 og kom með hana þá um haustið. Þessi bíll er búinn að vera í eigu margra manna í flestum landshlutum. Meðal annars hefur hann verið á Akureyri, Skagafirði, Kópavogi og nú síðast var hann á Ísafirði. Þar var hann sprautaður en samkvæmt upplýsingum Finnboga Eyjólfssonar í Heklu, þá flutti umboðið aldrei tvílitar bjöllur til landsins. Árið 1958 var bjallan 30 hestöfl. |

|
|
Wartburg 1981
Gunnar Helgason á Akureyri keypti þennan Wartburg nýjan af Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar. Gunnar notaði þennan bíl mikið m.a. á námsárum sínum í Svíþjóð, en síðan 1988 hefur bíllinn átt náðuga daga inni í bílskúr, þangað til í janúar 2002, að Gunnar kom með bíllinn á safnið. Wartburg er með þriggja sílindra tvígengis vél 65 hestöfl og vatnskældur. |
 |
|
Þúfnaskeri Hauks í Garðshorni
Sennilega hefur Haukur Ingjaldsson í Garðshorni smíðað þennan þúfnaskera eftir lýsingu frá Jakobi Líndal en Ræktunarfélag norðurlands hafði látið smíða svona þúfnaskera eftir hans fyrirsögn árið 1914. Þetta tæki er eingöngu hnoðað eða boltað saman, engin suða var til á þessum tíma önnur en þegar menn suðu saman yfir eldi. |
 |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|