7. júní 2010 |
Safniđ opnađ 2010! |
Ţá erum viđ búin ađ opna safniđ enn eitt voriđ. Ţađ hafa bćst viđ
 |
| Dixie Flyer árgerđ 1919. | nokkur ný tćki í vetur og vor, viđ kláruđum ađ endurbyggja Oliver Cletrac HG beltadráttarvél. Ţjóđminjasafn Íslands og Samgönguminjasafniđ gerđu samstarfsamning um varđveislu og sýningu á Ford Zephyr Zodiac árgerđ 1955 sem Sigurđur Pétur Björnsson (Silli), bankastjóri á Húsavík átti. Silli gaf Ţjóđđminjasafniu bílinn áriđ 1991, síđan hefur hann veriđ í geymslum í Reykjavík en núna verđur hann til sýnis hérna hjá okkur. Fyrir nokkrum dögum kom svo til okkar mjög sjaldséđ bíltegund, en ţađ er Dixie Flyer árgerđ 1919. Dixie Flyer voru bara framleiddir árin 1916 til 1923, og eru afar fáir til í heiminum í dag. Ţessi bíll kom nýr til Akureyrar og er ennţá ótrúlega heill. Arngrímur Jóhannsson á Akureyri lánađi okkur ţennan bíl. Nú er safniđ líka komiđ međ síđu á Facebook, endilega kíkiđ á okkur ţar. |
| |
13. júlí 2009 |
Safnadagurinn! |
 |
| Hluti af bílaflotanum! | Í tilefni íslenska safnadagsins komu félagar í Bílaklúbbi Akureyrar í heimsókn til okkar á gömlu bílunum sínum. Jón Sigurđsson og feđgarnir Ţorgrímur og Óli á Húsavík komu líka á sínum bílum. Dagurinn var hinn skemmtilegasti og ekki spillti fyrir ţegar Skodi 440S árgerđ 1956 renndi inn á planiđ. Ţar var mćtt par frá Tékklandi á ferđalagi. Ţađ voru nálćgt 100 gestir sem litu inn hjá okkur á ţessum degi, sólin skein glatt en logniđ var ađ flýta sér ađeins of mikiđ. Viđ hérna á safninu viljum ţakka öllum gestunum fyrir góđan dag! |
| |
20. október 2008 |
Malbik! |
 |
| Malbikun KM ađ störfum. | Jćja ţá er búiđ ađ stćkka og malbika bílaplaniđ austan viđ eldri sýningarskálann hjá okkur. Safniđ er búiđ ađ fá mörg tćki í sumar og ég ćtla ađ segja frá nokkrum. Eiríkur Óskarsson gaf okkur Cadillac 1982 sem var forsetabíll Íslands í tiđ Vigdísar Finnbogadóttur. Systkinin Hulda og Sigurjón í Bitrugerđi í Eyjafirđi gáfu safninu Hanomag R 12 árg. 1955, ţau keyptu dráttarvélina nýja og hún er í ótrúlega góđu ástandi. Snjókötturinn hans Baldurs Sigurđssonar á Akureyri kom til okkar í lok september. Kötturinn er í fínu lagi og ber aldurinn vel, ţrátt fyrir ađ eiga margar svađilfarirnar ađ baki. Nú erum viđ byrjađir ađ vinna í nćsta verkefni, en ţađ er Oliver Cletrac HG beltadráttarvél sem kom ný ađ Álafossi í Mosfellsbć. Smelliđ á myndina til ađ sjá fleiri myndir frá okkur. |
| |
25. maí 2008 |
Sumariđ er komiđ! |
 |
| Ford 1945 og 1938. | Jćja ţá er sumariđ komiđ hingađ til okkar, brakandi blíđa og hiti. Viđ keyrđum Ford 1938 vörubílinn inn í sýningarsalinn í síđustu viku. Hann er núna alveg eins og hann kom til landsins fyrir 70 árum. Báđir sýningarsalirnir eru nú orđnir klárir fyrir sumariđ. |
| |
10. mars 2008 |
Búiđ ađ sprauta Fordinn! |
 |
| Ford 1938. | Jćja ţá er loksins komiđ lakk á Ford 1938 vörubílinn sem viđ erum búnir ađ vera ađ vinna í síđustu árin. Ţessi bíll er smíđađur úr tveim bílum, Ingólfur Jónsson kaupfélagsstjóri á Hellu keypti annan bílinn nýjan. Hinn kom nýr til Hólaskólans í Hjaltadal. Ţeir voru báđir svona grćnir og svartir á litinn. Vonandi tekst okkur ađ klára hann fyrir sumariđ. |
| |
5. nóvember 2007 |
Veturinn er kominn! |
 |
| Sunbeam Rapier | Jćja ţá er veturinn kominn til okkar hérna í sveitina og viđ erum búin ađ koma flestum bílunum inn í hús, í dag eru 104 bílar og dráttarvélar inni. Emiliana Torrini söngkona gaf okkur ţennan Sunbeam Rapier sem er á myndinni hérna til hliđar. Afi hennar, Aage L'orange jazz píanisti keypti hann nýjan. Viđ höfum fengiđ marga bíla á ţessu ári m.a. Austin Gypsi árg. 1962, Mercedes Bens árg. 1985 Ţ 400, Peugeot 504 árg. 1974, Oliver Cletrac HG beltadráttarvél árg 1946. Svo komu nokkrir bílar til geymslu. Síđasta föstudag komu tveir hópar til okkar, fyrst kom starfsfólk Norđlenska á Húsavík og um kvöldiđ kom Skeljungur međ viđskiptavini sína í heimsókn. Smelliđ á myndina hérna til hćgri og sjáiđ nokkrar myndir frá undanförnum dögum. |
| |
14. ágúst 2007 |
Fallegur gripur! |
28. júlí 2007 |
Góđir gestir í heimsókn. |
20. júní 2007 |
International 10-20 árg. 1930. |
eldri fréttir
|